Jeg sidder i vinduet og ser pa solnedgangen i Danmark mens je tænker om fremtiden, det er dejligt, meget dejligt:)
Jæja hvað segiði? ég segi allt fínt hjá mér var hvorki meira en minna en 17 stiga hiti og sól, fantastik vejr:) ég er búin að rölta um meðal fuglanna og fiðrildanna og finna lyktina af grænu grasinu meðan ég borða ís með súkkulaði. Gerist það betra??
Ég er í sjöunda himni núna, á leið í þann áttunda bráðum verð ég að segja. Allt er að lifna við að vetrardvalanum og það lifnar sko hratt við, það verður að segjast eins og er. Í dag sá ég eðlu og mauraþúfu, fyrir utan alla fuglana sem eru að byggja sér hreiður hérna í þakskygginu. Svo bauð grafíski kennarinn okkur í mojhito út á verönd hjá sér, það var örugglega 20 stiga hiti í logninu. Jæja ég er glöð með þetta veður, allir verða svo hressir og glaðir.
Læt þetta nægja og ég bið að heilsa öllum
knus knus Hrefna
3 ummæli
Sæl elsku systir
Það slitnar alltaf sambandið þegar þú hringir. Við verðum fyrir austan um páskana. Heyrumst siðarn.
Ofsalega ert þú ástfanginn eitthvað
LUV Sunna sys
hæ hæ
Mikið er gaman að lesa svona færslu - maður fær bara fiðring, greinilega æðislegt hjá þér
Hafðu það gott skvíz :*
Takk:) sömuleiðis og gleðilega páska:)