Jeg sidder i vinduet og ser pa solnedgangen i Danmark mens je tænker om fremtiden, det er dejligt, meget dejligt:)
Jæja hvað segiði? ég segi allt fínt hjá mér var hvorki meira en minna en 17 stiga hiti og sól, fantastik vejr:) ég er búin að rölta um meðal fuglanna og fiðrildanna og finna lyktina af grænu grasinu meðan ég borða ís með súkkulaði. Gerist það betra??
Ég er í sjöunda himni núna, á leið í þann áttunda bráðum verð ég að segja. Allt er að lifna við að vetrardvalanum og það lifnar sko hratt við, það verður að segjast eins og er. Í dag sá ég eðlu og mauraþúfu, fyrir utan alla fuglana sem eru að byggja sér hreiður hérna í þakskygginu. Svo bauð grafíski kennarinn okkur í mojhito út á verönd hjá sér, það var örugglega 20 stiga hiti í logninu. Jæja ég er glöð með þetta veður, allir verða svo hressir og glaðir.
Læt þetta nægja og ég bið að heilsa öllum
knus knus Hrefna